Varðandi námið
Ég er farinn að halda að enginn viti í raun og veru hvað ég er að læra þarna í Lundúnum. Mamma spurði mig allavegana í gær hvað ég “yrði” eftir að ég væri búinn að ljúka þessu námi og pabbi var nokkuð sannfærður um að ég kæmi sterkur inn í fjármálaheiminn næsta haust.
Þetta eru foreldrar mínir, gott fólk.
Svo það sé á hreinu þá er ég að stúdera samanburðarstjórnmál með áherslu á efnahagsmál. Ekki hagfræði og hvað þá fjármálafræði. Viðfangsefni námsins er náttúrulega nátengt hagfræðinni, en sjónarhornið er allt annað.
Það snýst mun frekar um að greina hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru, hvernig og hvers vegna þeir eru mismunandi á milli landa og hvaða lærdóm sé hægt að draga af því. Hvers vegna eru velferðarkerfi ríkja heimsins misstór? Hvers vegna er ójöfnuður meiri í sumum löndum en öðrum? Hvaða áhrif hafa kosningakerfi á endurdreifingu gæða? Hvaða áhrif hefur lýðræðið á kapitalisma og öfugt? Hvernig samrýmist sjálfstæður seðlabanka lýðræði? Er velferðarríkið dauðadæmt vegna hnattvæðingar?
Ég er ótrúlega sáttur við þetta nám. Svo sáttur raunar að ég er alvarlega að velta því fyrir mér að halda áfram og taka doktorinn.
En meira um það síðar. Þessa dagana kemst ekkert að nema að njóta þess að vera í fríi á Íslandi… sem er viiirkilega næs.



