Sumarið, haustið, mátturinn og dýrðin

Eftir rúmlega árshlé er maður mættur úr bloggdvala. Raunar er ég að taka nokkuð forskot á sæluna – ætlaði ekki að taka bloggskóna af hillunni fyrr en með haustinu, en eitt leiddi af öðru og BAMM, hér er ég að skrifa þessar línur!

Ég mun nú sennilega leyfa þessu að vera með rólegra móti í sumar, en ætla svo að reyna eftir bestu getu að vera duglegur við bloggið frá og með ágústmánuði, enda er stefnan sett á Bandaríki Norður-Ameríku seinni part þess mánaðar.

,,Ha?” gæti nú einhver hváð. ,,Til Bandaríkjanna!?”

Þá er því til að svara að síðuhaldari er á leiðinni í doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í hinu mikla miðfylki Ohio í Bandaríkjunum. Þar mun maður væntanlega ala manninn næstu 4-5 árin, ef allt gengur að óskum.

Hví OSU (eins og við verðandi nemendur skólans köllum hann) en ekki einhver annar skóli? Jú, stjórnmálafræðideildin þar er nokkuð hátt metin, deildin er með breiðan hóp kennara á mínu sviði og styrkurinn sem ég fæ þaðan er ljómandi góður. Hví ekki segi ég nú bara!

Ég reikna annars með að nýta bloggið í að koma með digurbarkalegar og yfirlætisfullar athugasemdir um þjóðmál (minni heittelskuðu heiðbláu kærustu væntanlega til mikillar armæðu), deila áhugaverðum hugmyndum sem ég finn í fræðilitteratúrnum með lesendum, býsnast yfir lífinu á jaðri biblíubeltisins og tjá mig um annað það sem kann að vekja athygli mína hverju sinni – hvort sem það er fótbolti, kvikmyndir, hamborgarar, slappur húmor eða eitthvað allt annað.

Stay tuned, y’alls!

Það hlaut að koma að því: Byrjaður að blogga aftur XXIV

4606951165_9d5135f268_b

Meira síðar.

Að ferðast

Það er margt fyndið að finna á Stuff White People Like. Þessi kafli, um árið sem mann dreymir alltaf um að taka sér frí, fannst mér sérlega góður:

When someone goes through a stressful experience they usually require some time off to clear their head, regain focus, and recover from the pain and suffering. Of course, in white culture these experiences are most often defined as finishing high school, making it through three years of college, or working for eleven months straight with only two weeks vacation and every statutory holiday (”they don’t count because I had to spend them with family.”)

Though you might consider finishing school or having a good job to be “accomplishments” many white people view them as burdens. As such, they can only handle them for so long before they start talking about their need to “take a year off” to travel, volunteer, or work abroad.

It is most common for the person taking the year off to use this time to travel (see Post #19 for reasons why). Generally, they will start off with a set amount of money that will use to travel for as long as possible. This explains why a white person with an $800 backpack will haggle with a poverty-stricken street vendor about a $2 dollar plate of food.

If you work with this person, be sure to give them a FAKE email address on their last day on the job or you will be inundated with emails about spiritual enlightenment and how great the food is compared to similar restaurants back home. Also, within the first five days following departure, this person will come up with the idea to write a book about their travel experience. Sadly, more books about mid-twenties white people traveling have been written than have been read.

Regardless of how a white person chooses to spend their year off, they all share the same goal of becoming more interesting to other people. Sadly, the people who find these stories interesting are other white people who are politely listening until they can tell their own, more interesting story about taking a year off.

Thankfully, there is an enormous opportunity for personal gain. You see, whenever a white person takes a year off it opens up a valuable apartment, job opportunity or admissions slot. Consider it to be the most pretentious form of affirmative action.

Gott stöff!

Kvöldið fyrir próf

Ég held að ég hafi aldrei nokkurn tímann eytt jafnmiklum tíma í lærdóm og ég hef gert síðan ég kom aftur hingað út til London um miðjan apríl… og hef ég þó ekki verið þekktur fyrir annað en að eyða drjúgum tíma yfir bókunum!

Afraksturinn af þeirri vinnu er að skila sér á blað þessa dagana – tók fyrsta prófið fyrir viku síðan, sem gekk mjög vel, og tek síðan fjögur próf á næstu átta dögum. Fyrst er það States & Markets á morgun, svo Politics and Policy in Great Britain á mánudaginn, Capitalism & Democracy á fimmtudaginn og loks Comparative Politics of Redistribution in Advanced Democracies á föstudaginn. Ég hlakka mikið til að klára þennan pakka og ekki síður að koma heim í íslensku sumarsólina.

Hef annars haft það fyrir sið allar götur síðan í menntaskóla að taka mér frí frá lestri kvöldið fyrir próf – slappa frekar bara af og koma mér í rétt hugarástand fyrir prófið. Maður er búinn að troða öllu sem hægt er í kollinn á sér, svo þetta snýst bara um að ná því öllu á blað á þeim skamma tíma sem maður hefur… og þá skiptir máli að vera úthvíldur og ferskur.

Í þetta skiptið skelltum við okkur nokkur á íþróttapöbb hérna í nágrenninu og áttum góðar stundir. Ég tók tvo leiki í keilu (127 og 123) og varð svo frægur að spila borðtennis við fimmtánfaldan(!) Noregsmeistara í þeirri ágætu íþrótt! Hafði ekki hugmynd um að Fred, sem býr gegn mér hérna á vistinni, hefði þetta á ferilskránni… Hann tjáði mér reyndar í þokkabót að hann hefði þrívegis att kappi við Gumma Stephenssen í keppni og alltaf haft betur.

Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að þegar ég loksins náði stigi á hann sleit ég leiknum snarlega og lýsti sjálfan mig sigurvegara…

Pólitíkin

Ég verð ekkert mikið málefnalegri en þetta um þessar mundir.

    Nýjustu ummælin

  • Elín Sigrún um Easy Does It (5):

    Ég er með forrit í símanum sem er svona hlaupaforrit og meira að segja telur skrefin og... (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Jamm, og ef þú nálgast Android eða iPhone síma útí USA þá mæli ég klárlega með Runkeeper. Ég ELSKA... (Skoða)
  • Aggi um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á Nike+… þarf klárlega að græja mig upp með því! (Skoða)
  • Andri um Easy Does It (5):

    Sjá tólin fyrir jólin! (Skoða)
  • Einar Örn um Easy Does It (5):

    Djöfull líst mér vel á þetta. Prógrammið, sem að ég lét þig fá er þó ekki jafn erfitt og þú heldur.... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar