Sumarið, haustið, mátturinn og dýrðin
Eftir rúmlega árshlé er maður mættur úr bloggdvala. Raunar er ég að taka nokkuð forskot á sæluna – ætlaði ekki að taka bloggskóna af hillunni fyrr en með haustinu, en eitt leiddi af öðru og BAMM, hér er ég að skrifa þessar línur!
Ég mun nú sennilega leyfa þessu að vera með rólegra móti í sumar, en ætla svo að reyna eftir bestu getu að vera duglegur við bloggið frá og með ágústmánuði, enda er stefnan sett á Bandaríki Norður-Ameríku seinni part þess mánaðar.
,,Ha?” gæti nú einhver hváð. ,,Til Bandaríkjanna!?”
Þá er því til að svara að síðuhaldari er á leiðinni í doktorsnám í stjórnmálafræði við Ohio State University í hinu mikla miðfylki Ohio í Bandaríkjunum. Þar mun maður væntanlega ala manninn næstu 4-5 árin, ef allt gengur að óskum.
Hví OSU (eins og við verðandi nemendur skólans köllum hann) en ekki einhver annar skóli? Jú, stjórnmálafræðideildin þar er nokkuð hátt metin, deildin er með breiðan hóp kennara á mínu sviði og styrkurinn sem ég fæ þaðan er ljómandi góður. Hví ekki segi ég nú bara!
Ég reikna annars með að nýta bloggið í að koma með digurbarkalegar og yfirlætisfullar athugasemdir um þjóðmál (minni heittelskuðu heiðbláu kærustu væntanlega til mikillar armæðu), deila áhugaverðum hugmyndum sem ég finn í fræðilitteratúrnum með lesendum, býsnast yfir lífinu á jaðri biblíubeltisins og tjá mig um annað það sem kann að vekja athygli mína hverju sinni – hvort sem það er fótbolti, kvikmyndir, hamborgarar, slappur húmor eða eitthvað allt annað.
Stay tuned, y’alls!
