Menntun ráðherra
Jæja svo fór sem fór. Úr þessu vona ég að það verði mynduð minnihlutastjórn VG og Samfylkingar, sem mun svo vonandi geta starfað áfram eftir kosningar. Íslenska þjóðin á að minnsta kosti skilið langþráð frí frá Sjálfstæðisflokknum. Ég ætla annars ekkert að úttala mig frekar um það – nema að mér finnst tilhugsunin um Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra alveg frábær! Gó Jóbama!
*
Eitt hefur farið alveg sérstaklega mikið í taugarnar á mér undanfarna mánuði. Það er þegar fólk er að úttala sig um menntun þingmanna og sérstaklega ráðherra og hneykslast á því hvers vegna þeir eru þar sem þeir eru. Þeir Árni Mathiesen og Björgvin Sigurðsson hafa orðið alveg sérstaklega fyrir barðinu á þessu. Í viðtalinu sem Sindri Sindra froðufelldi gjörsamlega yfir Geir Haarde í síðustu viku hafði hann til dæmis á orði að það væri “hlegið að okkur erlendis” fyrir að vera með dýralækni í fjármálaráðuneytinu og heimspeking í viðskiptaráðuneytinu. Nú er svo fólk farið að hneykslast á því að jarðfræðingur verði fjármálaráðherra… næst mun fólk væntanlega súpa hveljur yfir því að flugfreyja verði forsætisráðherra!
Satt best að segja finnst mér þetta agalegt og óþolandi menntasnobb. Fólk er ekki kosið á þing útaf menntun sinni og fólk velst heldur ekki til forystu í stjórnmálum útaf henni. Við kjósum það fólk sem við treystum til að hafa forystu fyrir íslenska þjóð og þá sem bjóða upp á hugmyndir og hugsjónir sem við trúum á. Að ætla að víkja því fólki til hliðar og krefjast svo ákveðinnar menntunnar af frambjóðendum er afar öfugsnúið og ólýðræðislegt.
Auðvitað eiga ráðherrar að hafa sérfræðinga sér til aðstoðar. En þeir sjálfir þurfa ekki að vera sérfræðingar.
