Efnisorð: Í fjölmiðlum

Sjónarhóll síðuhaldara

Reiður!Síðuhaldari er viðmælandi Fréttablaðsins í dálkinum “Sjónarhóll” í dag. Ég beið spenntur eftir að sjá hvaða fyrirsögn viðtalið yrði undir og varð talsvert létt þegar ég sá hina meinlausu niðurstöðu – “Líst nokkuð vel á Oygard”.

Síðast þegar undirritaður var viðmælandi blaðsins þá var niðurstaðan öllu verri – “Reiður”(!).

Familíunni minni – og sérstaklega bróður mínum – þótti það alveg óheyrilega fyndið og ætlaði aldrei að hætta að japla á því!

Þetta tókst þó öllu betur – mæli auðvitað með því við lesendur Aggagaggsins að þeir kíki á stöffið.

Reiður

Reiður!Ég kann ónefndum blaðamanni Fréttablaðsins bestu þakkir fyrir að vekja athygli á hversu reiður ég er í blaði dagsins.

Annars keypti ég dýrasta hamborgara seinni ára á Thorvaldsen í gærkvöldi – 1890 krónur takk fyrir kærlega. Hafandi smakkað allnokkra borgara á ævinni verður þó að segjast alveg eins og er að þetta er sennilega sá besti sem komið hefur inn fyrir varir mínar!

DV: Borðar kiwi með gaffli

Kallinn er kominn í guðatölu í félagi hagfræðinema… eða því sem næst. Mæli klárlega með eftirfaranda skyldulesningu: http://hi.is/~okonomia/pistlar/pistlar.html

Góðar stundir.

    Nýjustu ummælin

  • Margrét Rós um Ameríski háskólaboltinn (5):

    ég er ekki að ná utan um þessar tölur! Þetta er svaðalegt… Mikið er ég annars... (Skoða)
  • Agnar Freyr Helgason um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Þeir eru reyndar bara á haustin… en hey, við finnum örugglega eitthvað... (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Eru ekki alltaf leikir allt árið? Kannski dreg ég þig á leik þegar ég kem í heimsókn :) (Skoða)
  • Aggi um Ameríski háskólaboltinn (5):

    Jújú, klappstýrur og allur pakkinn. Mæli tvímælalaust með því að skella sér á leik! (Skoða)
  • Elín Sigrún um Ameríski háskólaboltinn (5):

    vá en spennandi! Voru ekki svona klappstýrur líka? Hvernig voru dansarnir? Oh mig... (Skoða)

Áhugavert af öðrum slóðum

Helstu þráhyggjur síðuhaldara

Kvikmyndadómar