Á Vísi er frétt um það hversu illa dönskum ungdóm gengur á prófi sem ætlað er innflytjendum sem vilja öðlast danskan ríkisborgararétt. Er prófið 40 spurningar og þarf að svara 28 rétt til að ná – semsagt 70%. Ég þreytti prófið að gamni mínu á heimasíðu Jótlandspóstsins og viti menn… ég náði með 28 réttum! Það gekk nú hálf brösuglega að skilja sumar spurningarnar… en það kom mér engu að síður á óvart hversu mikið maður fattaði. Gaman að þessu!
Mínir gömlu flokksfélagar hafa ratað inn á nýjar brautir í örvæntingarfullum tilraunum sínum til að ná í atkvæði fyrir flokkinn. Þessa þróun mátti svo sem alveg sjá fyrir þegar í vor, en mér þykir annars mjög sorglegt að það skuli hafa orðið ofan á að keyra á þessu máli. Vona ég svo innilega að allt það góða fólk sem starfar innan flokksins stígi á bremsuna strax í upphafi og leyfi þessu ekki að verða að “aðalmálinu” í vor. Veldur það mér sérstökum vonbrigðum ef Margrét Sverrisdóttir er sammála þeim kumpánum Jóni M. og Magnúsi Þ., enda var hún ein af höfuðástæðunum fyrir því að ég gekk í flokkinn á sínum tíma. Ég bind þó ennþá vonir við að hún sjái ljósið og komi yfir í Samfylkinguna fyrr en seinna…
Við Helga kvittuðum annars undir ályktun fyrir hönd Vefritsins ásamt forsvarsmönnum annarra ungliðahópa vegna þessa málflutnings Magnúsar. Er það reyndar svoldið brútal að ég skuli vera efst á þessum lista í ljósi setningarinnar: “Forsvarsmenn ungliðahreyfinganna taka fram að engin ungliðahreyfing starfi hjá Frjálslyndum og því ekki hægt að leita álits þar.” Veit nú ekki alveg hversu nákvæm þessi fullyrðing er – held að það séu nú nokkrir ennþá virkir í ungliðastarfinu.. en ég var svosem ekki spurður álits um það, sjálfur gjaldkerinn emiritus. Fannast annars líka mjög skondið að 6 af 14 einstaklingum sem kvitta undir þetta eru starfsmenn Bankans!
Yfir í aðra sálma. Rakst á grein á vefriti Ungra Jafnaðarmanna í Hafnarfirði eftir Þórð Sveinsson, formann þess ágæta félags. Finnst greinin fanga fullkomlega hlutverk Samfylkingarinnar og hugmyndir mínar um þá hugmyndafræðilegu gerjun sem er svo nauðsynleg innan stórs félagahyggjuflokks. Held að þau mismunandi viðhorf og ólíku áherslur sem þrífast innan flokksins séu forsenda fyrir því að flokkurinn geti nokkurn tímann skákað Sjálfstæðisflokknum sem stærsti flokkur landsins. Eins og kom bersýnilega í ljós á Landsþingi Ungra jafnaðarmanna fyrr í haust þá verðum við Þórður seint sagðir hafa sömu sýn á hlutina, en við virðumst þó deila þeirri framsýni og þeim vilja sem þarf til að stuðla að því að hér komist að ríkisstjórn jafnaðarmanna á næstu árum. Gaman að því.
Okkur ungliðunum sem sendum frá okkur ályktun í vikunni um framferði Magnúsar Þórs og Jóns Magnússonar í innflytjendamálum hefur verið legið á hálsi fyrir að vera þröngsýnir “þöggunarsinnar” og þjást alvarlega af pólitískum rétttrúnaði (les ég kannski málefnin.com of mikið?). Þykir mér það miður enda virðist öll umræðan dragast í þá dilka. Auðvitað eru ýmis álitaefni sem koma upp þegar erlent fólk ákveður að flytjast búferlum til Íslands – auðvitað þurfa íslensk stjórnvöld sífellt að huga að því að læra af reynslu nágrannaþjóða okkar og gera ekki sömu mistökin. Það er gjörsamlega valid punktur. Það er hins vegar ekki verið að agnúast út í það.
Það er verið að agnúast út í þessa tvo ágætu menn fyrir það hvernig þeir setja málið sitt fram – nálgun þeirra (í flestum tilvikum amk). Þeir líta ekki á þetta sem sjálfsagt viðfangsefni stjórnmálamanna, heldur vandamál/plágu á íslensku þjóðfélagi. Þeir vita sem er að margur maðurinn er óánægður með þá auknu fjölmenningu sem hefur blómstrað hér á undanförnum árum og þeir spila á þær tilfinningar fólks. Hvað annað er það þegar menn horfa til ársins 2015 og segja að þá muni fimmti hver maður á landinu ekki tala íslensku? Hvað annað er það þegar settar eru fram dómsdagsspár um að íslenskri menningu muni vera hent á haugana og að við munum vera gerð hornreka í eigin samfélagi áður en langt um líður? Ég segi það og skrifa, þetta er stórhættuleg framsetning á þeim álitamálum sem uppi eru. Þetta er til þess eins að ala á hatrið, en ekki stuðla að sátt og samlyndi í landinu. Slíkur málflutningur er ekki sæmandi aðilum sem vilja vera í forystu í íslensku samfélagi.
Annars er alltaf gaman að skoða hvað fólk sagði í gamla daga… kíkjum á tvö brot úr ræðustóli Alþingis frá MÞH:
Hér eru hins vegar vísbendingar um að það sé aukin andstaða við að leyfa ætti fleiri útlendingum að vinna hér á landi og að við ættum ekki að taka við fleiri flóttamönnum. Þetta eru einungis vísbendingar en þrátt fyrir það gæti falist í því aðvörun en ég treysti í sjálfu sér stjórnvöldum á hverjum tíma til að vera á vakt gegn þeirri vá sem fordómar gegn útlendingum eru. Við vitum alveg hvernig nágrannalöndin hafa lent í vandræðum með slíka hluti, það ætti að verða okkur lexía og við ættum einmitt að stúdera grannt hver reynsla þeirra hefur verið og draga síðan lærdóm af því og ég efast í raun og veru ekkert um að okkur Íslendingum takist að gera það. Við þurfum á útlendingum að halda í framtíðinni, bæði til að auka og auðga menningu okkar en líka sem vinnuafli. Þeir eru velkomnir.
Í umræðum um stöðu innflytjenda, 16. nóvember 2004.
Hvernig stendur á því að menn taka þá ákvörðun að galopna nú landið fyrir óvopnuðum her láglaunafólks frá fyrrum ríkjum Austur-Evrópu?
Í umræðum um Atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES og atvinnuréttindi útlendinga, 28. apríl 2006
“Er fjölgun útlendinga á Íslandi ógnun við atvinnuhagsmuni íslenskra launþega?” spyr Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, á heimasíðu sinni, og fær 62% jákvæða svörun (þegar þetta er ritað). Eitthvað finnst mér þetta undarleg spurning. Með því að spyrja svona gefur hann auðvitað í skyn að útlendingar séu íslensku atvinnulífi ógnun og að það megi draga úr þeirri ógnun á einhvern hátt, væntanlega með frekari höftum á fólksflutninga til landsins. Væri ekki allt eins hægt að breyta hópnum sem spurt er um og spyrja: “Er fjölgun kvenna á atvinnumarkaði ógnun við atvinnuhagsmuni íslenskra karla?” Það fangar kannski betur hvað þetta eru forheimskandi vangaveltur hjá hinum frjálslynda Magnúsi Þór.