Döpru vísindin
Hvernig er annað hægt en að elska hagfræði?
Hvernig er annað hægt en að elska hagfræði?
Ég er á móti því að reykingar verði bannaðar með lögum á veitinga- og skemmtistöðum.
Fólk hnyklar yfirleitt augabrúnirnar í vanþóknun og fussar yfir mér þegar ég tjái því þetta og fer að útskýra fyrir mér hvað reykingar eru hættulegar. Lætur eins og ég reyki og hafi verið með puttana í eyrunum, liggjandi undir steini á Mars síðustu 10 árin.
Það þarf hins vegar ekkert endilega að fara saman: Að vilja ekki banna reykingar á þessum stöðum og að fýla reykingar á einn eða annan hátt. Mér finnast raunar reykingar ógeðslegar. Móðir mín getur staðfest það. 15 ára eyðimerkurgöngu minni til að fá hana til að hætta að reykja lauk í fyrra með skilyrðislausri uppgjöf hennar. Ófáum sígarettunum hafði verið hent, brenndar, límdar, klipptar, rifnar og þar fram eftir götunum í því stríði.
En jæja, þótt að ég sé á móti fullkomnu banni á reykingum á þessum stöðum þá er málið ekki eins svart/hvítt eins og fólk virðist stundum halda – það er til millivegur og hann er vel fær. Hvers vegna ekki að leggja reykingaskatt á þá staði sem leyfa reykingar?
Klikkuð pæling, ég veit. Að mínu mati myndi hún þó koma fyllilega til móts við alla málsaðila:
1) Eignaréttur væri ekki fullkomlega virtur að vettugi með boði og banni.
2) Það væri enn sterkari hvati fyrir veitingamenn til þess að reka reyklausan stað og fyrir einstaklinga til að sækja þá staði – ekki nóg með að staðirnir væru lausir við reykingafýlu þá væri bjórinn líka ódýrari!
3) Réttlætingin fyrir þessari leið er ekki torsótt… Reykingar valda eftir allt saman auknum kostnaði á heilbrigðiskerfið og því eðlilegt að þeir sem valda þeim kostnaði greiði hærra hlutfall af honum en þeir sem kjósa að sækja ekki slíka staði. Og frá hinni hliðinni: Það er engum þvingað inn á reykingastaði… það er val hvers og eins að sækja staði sem reykt er á og því óþolandi forsjárhyggja að ætla að banna þetta með lögum. Það er allavegana fullt tilefni til að gæta meðalhófs í þessu sem öðru.
En já, bara mitt innlegg í umræðuna. Hagfræðinemanum finnst fínt að nýta markaðinn til að leysa þetta vandamál.