Jæja, Vigeland-tímablinu er lokið. Það virtist ekki vera að gera sig að kalla sig Agnar Vígeland. Samt dáldið dýrt.. það kostar peninga að láta breyta þessu í þjóðskránni og ég er núna búinn að þurfa að breyta því aftur úr Agnar Vígeland yfir í gamla nafnið. En jæja, live and learn. Núna er ég kominn með öllu skemmtilegra viðurnefni… nebbla Aggi flinki (ef þú fattar þetta ekki, horfðu þá á Sódómu Reykjavík). Ég kann afar vel við það nafn… og síðan á það auðvitað mjög vel við í mínu tilviki ;) Nei djók…
En jæja, eins og allir vita þá ljúga skoðanakannanir ekki. Samkvæmt minni nýjustu, þá mun Frjálslyndi flokkurinn vinna stórsigur í alþingiskosningunum í vor og allt útlit er fyrir að ég muni fara inná þing. Þetta á auðvitað eftir að riðla verkfræðináminu aðeins hjá mér og síðan fer sumarfríið auðvitað forgörðum, því ég þarf skiljanlega að kynna mér öll málefni til hlýtar og undirbúa mig vel undir næsta þing. Þetta kom nú eiginlega alveg flatt upp á mig, enda hélt ég aldrei að sjötta sætið í Reykjavík Suður myndi koma mér inná þing. Vonandi munið þið, kæru lesendur, sýna mér skilning á komandi mánuðum. Vegna anna verð ég ekki oft viðlátinn og líklega fúll og pirraður vegna svefnleysis þegar fólk ræðir við mig. Ef það eru einhver málefni sem þið viljið koma á framfæri (einkavinir mínir fá auðvitað spes díla við gerð lagafrumvarpa) þá skulið þið bara bjalla í mig… Ég er opinn fyrir öllu ef frí máltíð (helst á KFC, en sætti mig líka við McDonalds) eða bíóferð (mig langar að sjá “nóa albínóa”, “the hours”, “hunted” og “final destination 2″) er í boði.
Þetta verður ekki lengra í bili… gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki styggja hunda.
Ég skil ekki þessa endalausu þráhyggju fólks að vera með einhver fancy ættarnöfn. Eins og það geri einhvern að betri manni að heita til dæmis Lárus Thorlacius heldur en Lárus Teitsson. Ég held að þetta tengist því að við erum íslensk…. reyndar held ég að flestar dellur tengist því. Einhver sjúkleg þörf til að vera sérstakur… Mamma, mamma, sjáðu mig, ég er sérstakur.Einhver sagði mér að þetta væri gott ef maður yrði bisnesskall í útlöndum… Mr. Blondal á þá að vera þjálla en Mr. Sigurdarson. Mér finnst það samt bara vera argasta vitleysa. Ég held að Mr. Sigurdarson sé miklu minnisstæðara nafn en t.d. Mr. Blondal. Síðan eigum við auðvitað öll að vera stolt af íslenskum uppruna okkar og venjum landans. Hvergi í heiminum (að ég best veit amk) er svona brilliant nafnakerfi notað – við eigum frekar að flagga sérvizkum okkar en að bæla þær niðri í meðalmennskunni. Ég ætla samt að prófa að vera með ættarnafn í svona eina viku… just to see what all the fuzz is about. Svo ég valdi mér Vígeland… það er auðvitað ekkert út í bláinn. Pabbi heitir Helgi Sverrir Vígeland Guðmundsson – Vígeland er semsagt í höfuðið á einhverjum norskum málara. Heví flott nafn en því miður ekki ættarnafn. Ég verð semsagt að heita Helgason áfram, amk í þjóðskránni. Agnar Freyr Vígeland Helgason… 1,2,3… 29 stafabil. Jess, mannanafna-fasistarnir geta ekki bannað mér að breyta nafninu… Liggaliggalái!Svo hér eftir skrifa ég undir: Agnar Vígeland. Mr. Vigeland.
Jú, þetta er nú vissulegra flottara en hitt nafnið…..Æj, mér finnst þetta miklu flottara nafn. Ætli það sé mikið vesen að láta breyta þessu í þjóðskránni?
Það er undarlegt með bílinn minn – hann bilar alltof sjalfan. Mig er farið að gruna að bifvélavirkinn á fyrstu hæðinni sé að fikta í honum á nóttunni. Rannsóknarvinna er í gangi.