London baby!
Mér til ómældrar gleði fékk ég að vita það í vikunni að ég væri kominn inn í LSE! Að öllu óbreyttu mun ég flytja til Lundúna næsta haust og setjast á skólabekkinn. Námið sem ég er á leiðinni er meistaranám í European Political Economy, sem mér hefur gengið déskoti illa að þýða upp á okkar ylhýra. Stjórnmál evrópskra hagkerfa er það næsta sem ég hef komist, en það hljómar ekki alveg nógu sexý… allar tillögur væru vel þegnar! :)
***
Annars ætla ég að segja þetta gott af bloggfærslum í bili. Það hefur gengið hálf stopullega að uppfæra þessa síðu og þegar manni finnst það orðin meiri kvöð en skemmtun þá er bloggandinn klárlega ekki á sveimi yfir manni. Það er líka andskoti nóg að gera í skólanum og vinnunni. Held að ég parkeri því síðunni, sennilega þangað til næsta haust. Þá verð ég líka orðinn heimsborgari og mun hafa svo margt skemmtilegt og fróðlegt að segja…. þangað til segi ég annars bara cheers!
Jæja, þá hef ég innbyrt allt námsefni annarinnar á punktaformi í dag. 25 blaðsíður af þéttskrifuðum glósum, takk fyrir kærlega. Ekkert eftir nema að bíða eftir prófinu á morgun.
Vilji menn fá nasaþef af eftirfarandi atriðum þá er um að gera að ná á mér áður en prófið hefst í fyrramálið:
- Hvaða möguleika hefur Ísland til áhrifa innan EES?
- Hafa hagsmunir íslensks sjávarútvegs mótað stefnu Íslands í Evrópumálum?
- Hver eru áhrif þjóðernishyggju á Evrópustefnu Íslands?
- Hvaða þættir stuðluðu að samrunaþróun Evrópusambandsins?
- Hefur smæð íslenskrar stjórnsýslu haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Glatast fullveldið við inngöngu í Evrópusambandið?
- Hvernig hafa tengslin við Bandaríkin haft áhrif á Evrópustefnu Íslands?
- Hvernig má skilgreina alþjóðavæðingu?
- Hvað orsakar alþjóðavæðingu?
- Hversu alþjóðavætt er Ísland?
- Er alþjóðavæðing söguleg þróun?
Eins og ég segi – ef þið viljið ræða þetta við mig þá er um að gera að ná á mér fyrir kl. 8.45 í fyrramálið. Ég get ekki ábyrgst að ég verði viðræðuhæfur um þessi mál síðar… og alveg örugglega ekki um helgina.
Annars finnst mér þetta nám mitt alveg frábært!