Enn eitt pólitíska prófið
| You are a Social Liberal (73% permissive) and an… Economic Liberal (30% permissive) You are best described as a: Democrat Link: The Politics Test on Ok Cupid |
Þetta kemur svo sem ekki mikið á óvart.
| You are a Social Liberal (73% permissive) and an… Economic Liberal (30% permissive) You are best described as a: Democrat Link: The Politics Test on Ok Cupid |
Þetta kemur svo sem ekki mikið á óvart.
Niðurstöður mínar úr “Hvaða kaffi ertu?” ættu ekki að koma neinum á óvart:
Þeir sem hafa tekið stjórnmálaprófið á politicalcompass.org ættu að hafa gaman að myndinni hér fyrir neðan. Eins og á við um flesta af mínum vinum á ég líklega mesta samleið með Mike Gravel, hver sem það nú er…

Ég tók stysta stjórnmálapróf heimsins (að sögn aðstandenda síðunnar) og fékk hjálagða niðurstöðu. Set örlítinn fyrirvara við þetta, þar sem síðan er á vegum eldheitra frjálshyggjumanna, en uni niðurstöðunni svo sem ágætlega (ef frá er skilin fullyrðingin um að ég hafi sérlegan áhuga á ,,significant government control of the economy”.
LIBERALS usually embrace freedom of choice in personalmatters, but tend to support significant government control of the economy. They generally support a government-funded “safety net” to help the disadvantaged, and advocate strict regulation of business. Liberals tend to favor environmental regulations, defend civil liberties and free expression, support government action to promote equality, and tolerate diverse lifestyles.
Já, þetta er villt líf sem ég lifi. Undanfarnar vikur hefur mér reyndar fundist lífið mitt vera einn stór fundur – eilíf fundarhöld um mismerkilega hluti… og þetta mun aldrei taka enda! Í dag átti ég til dæmis fund við mína elskulegu móður um matarmálin á heimilinu. Svo virðist sem ég hafi verið heldur graður á rósmaríninu þegar ég var að baka mér brownies um daginn og þótti móður minni það mjög miður. Við komumst hins vegar að afar málefnalegri niðurstöðu – ég lofaði að hætta að baka á nóttunni og málið var dautt.
Í óspurðum fréttum er það annars helst að ég vann mikilvægan móralskan poolsigur fyrr í kvöld. Eftir erfiða daga í kjölfar Óskarstapsins, tókst mér að rétta mig ögn af og bar ég sigurorð af Andra og Guðmundi, 5-2-4. Ég ber því miklar væntingar til marsmánaðar. Það er ljóst að námsmál þarfnast smá átaks og því ekki ónýtt að þessi mánuður sé loksins runninn upp, en eins og máltakið segir: Mars til mössunar.
Mikil pólítísk ólga hefur verið innan herbúða Ungra frjálslyndra upp á síðkastið í kjölfar afar umdeildrar skoðanakönnunar um pólítíska stöðu félagsmanna. Í ljós hefur komið að meirihluti stjórnarinnar siglir undir fölsku flaggi og reynast þungarvigtarmenn vera sitt á hvað, íhaldsmenn eða valdboðssinnar. Mínu frjálslynda hjarta var heldur betur brugðið við þessar fréttir og krafðist ég tafarlaust neyðarfundar. Tillaga mín um að leysa núverandi stjórn frá störfum og boða til kosninga, var því miður felld. Meðfylgjandi leyfi ég að fylgja graf af stöðu minni í hinum pólítíska tígli. Staða mín endurspeglar vel hversu geðklofa ég er í flestum málefnum. Sáttur er ég þó. Prófið er hægt að nálgast hér.

Undanfarið hef ég haft afspurnir af þeirri gríðarlegu ásókn sem orðið hefur í heimasíðuna mína, sérlega úr röðum Röskvuliða. Ljóst er að sá ferski, frjálslyndi vindur sem ég hef komið með inn í þessi annars ágætu samtök hefur vakið athygli og er ég afar sáttur við það. Hægri kratinn Hrafn hefur þó lýst yfir óánægju yfir veru minni í núverandi flokki og breiðir hann út boðskap sinn um hinn Stóra íslenzka jafnaðarmannaflokk við hvert tækifæri. Það er vel.
Hátíðarkveðjur frá hagfræðinemanum, Agnar.