Rannsóknir á sérstöðu smáríkja hafa færst í aukana á undanförnum áratugum samhliða fjölgun þeirra í alþjóðakerfinu. Hafa Íslendingar ekki látið sitt eftir liggja í þessum efnum, en Rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands hefur skapað sér sess sem ein aðal miðstöð smáríkjarannsókna í heiminum. Eitt af viðfangsefnum smáríkjarannsókna snýr að hagsæld þeirra, sem merkilegt nokk er frekar mikil samanborið við stærri ríki heimsins. Í þessari seinni grein af tveim um efnahagslega stöðu smáríkja, fjallar Agnar Freyr Helgason um efnahagslega sérstöðu smáríkja og hvernig hún hefur stuðlað að velgengni þeirra á undanförnum áratugum. (meira …)
Rannsóknir á sérstöðu smáríkja hafa færst í aukana á undanförnum áratugum samhliða fjölgun þeirra í alþjóðakerfinu. Hafa Íslendingar ekki látið sitt eftir liggja í þessum efnum, en Rannsóknarsetur um smáríki við Háskóla Íslands hefur skapað sér sess sem ein aðal miðstöð smáríkjarannsókna í heiminum. Eitt af viðfangsefnum smáríkjarannsókna snýr að hagsæld þeirra, sem merkilegt nokk er frekar mikil samanborið við stærri ríki heimsins. Í þessari fyrri grein af tveim um hagsæld smáríkja, fjallar Agnar Freyr Helgason um þau efnahagslegu vandamál sem smáríki standa frammi fyrir og góðan árangur þeirra þrátt fyrir þau. (meira …)
Ég er að skrifa ritgerð um þessar mundir um ansi hreint skemmtilegt efni – uppsprettu auðæfa í smáríkjum. Fór á ráðstefnu tengda efninu í september upp í háskóla og glósaði allsvakalega. Rakst á eftirfarandi kvót sem ég hafði skráð og feitletrað í þokkabót, haft eftir Alan Dukes, fyrrv. fjármálaráðherra Írlands, þegar hann var spurðum um áhrif evrunnar á Írlandi:
The discipline of the euro has made it more difficult for politicians to make some of the mistakes they have made so many times before.
Ekki svo galið og rímar ágætlega við gagnrýnina sem heyrst hefur á Íslandi.